Að vera í útlöndum er nú ekki bara eintóm
sæla það er allveg á hreinu, fyrir utan að tala eins og 2 ára
krakki útum allt og vita stundum ekkert hvað fólk er að reyna
segja manni þá er nú margt buið að gerast.
Einar var t.d með lappir eins og 90 ára gömul kelling með bjúg,
vegna þess að hann var bitin af einhverju skorrdýri, Önnur löppin
var með miklu stærri kálfa en hinn og hinn löpin leit út eins og
hann hafi snúið sig þetta var rosalegt. Við ákvaðum eftir að hann
var buinn að vera svona í smá tima að drífa okkur til læknis, þegar
Einar sýndi lækninum hélt ég að myndi líða yfir hana hun var allveg
geðveikt stressuð og sagði honum að ef einhver þyrfti á henni að
halda í dag væri það hann. Einar fékk einhver 4 lyf og átti svo að
koma morguninn eftir og fá sprautu þannig þetta var helvíti
alvarlegt, hun hélt að þetta hafi verið eftir kóngurló!!!!!
Viðbjóður. Læknirnn sagði honum svo daginn eftir að hun hefði
virkilega hugsað að hun vildi að hann færi á sjúkrahusið, en ákvað
að sleppa því, því hún vissi að það yrði rosalegt vesen fyrir okkur
og ákvað að vona að lyfin myndu virka.sem þau gerðu.
við getum ekki farið að sofa fyrr en við erum buinn að Rannsaka
alla íbúðina, með viskastykki og drepa allar moskítoflugurnar sem
við sjáum annars vöknum við daginnn eftir öll út í bitum og erum að
drepast úr kláða allan daginn eftir.
Svo býr eðla hérna á vegnum úti og heilsar hun alltaf uppá okkur
þegar við förum í skólann á morgnana, en hún er nú samt bara allt í
lagi miða við hinn skordýrinn.
Þegar við komum heim á sunnudaginn eftir smá ferðalag til
marseille var eldhusborðið buið að lifna við það voru triljón
maurar á því og útum allt, þannig í gærkvöldi vorum við í því að
hreinsa allt í stofuni og eldhúsin og skúrra allt í dag, rosalega
gaman….
Um síðustu helgi fórum við ásamt 6 öðrum til Marseille við
lögðum að stað með lestinni kl 7:30 á laugardaginn, þannig það var
ræs kl 5:50 sem er allt og snemmt.Við höfðum það af, svo var
einhver bilun í lestinni þannig við vorum stop í Nimes í 45 min,
við fórum á kaffihus og sumir fengu sér kaffi og svona en Einar og
annar íslenskur strákur fengu sér stóran bjór kl 9 um
morguninn.
Þegar við komust á leiðar enda þá byrjuðum við á því að leit af
hóteli eða einhverjum stað til að sofa sem var ódýrt en samt ekki
þaannig að herbergið væri lifandi það gekk ekki vel til að byrja
með við fórum inná nokkur hotel sem voru bara helviti ódýr og
fengum að líta á en fyrstu 4 hotelinn voru viðbjóður ég þa að tala
um músaskít og matarafganga, vegfóður sem var ekki á veggjunum því
veggirnir voru svo drullugir að það var bara svona hálft á og hinn
helmingurinn á rúminu og svo fram eftir golfi Fundum en á endanum
fundum við bara allveg mjög fínt hótel fyrir ekki mikin pening.
Við vorum nú bara einn dag þar þannig við sáum nú ekki mikið, en
við sáum mikið af hundaskít og mikið af drasli allveg ótrúlega
mikið af drasli og maður gat varla borðað fyrir betlurum semsagt
allveg frábær borg .
En eina flotta þarna er að þetta er elsta borg frakklands
þarafleiðandi mikið af gömlum tilkomumiklum byggingum.
Svo reyndum við að skemmta okkur eitthvað um kvöldið en vorum
ekki búin að borða fyrr en 12 þannig að flestir staðir voru að loka
þegar við komum, því hér í france loka allir skemmtistaðir kl
1.
Annars er það helst að á morgun kl 6 í fyrramálið förum við til
Parísar á golfmót sem Sessa er að keppa í.
Í liðinu eru 3 aðrir strákar 2 frakkar og svo franskur svíi hann
john og ekki skemmmir að þeir spila póker þannig það verður
senilega spilaður poker á leiðinni heim á laugardagskvöldið.
Þetta er semsagt tveggja daga mót á einhverjum flottasta velli
evrópu segja Frakkarnir en á þessum velli er france open
spilað.
Við gistum á golfvallarhótelinu og það er ekkert gefins en
skólin borgar allt þannig það er flott.
En þetta er orðið gott endilega skrifa komment, og jú kanski
getið þið sagt okkur hvort við ættum að koma heim um jólin eða
ekki, getum nefnilega flogið héðan til London fyrir 1 sent og svo 9
kall mannin þaðan heim,vitum ekki hvað við gerum svoldið skrítið að
fara heim og svo aftur út en við skoðum þetta.
og það eru komnar nýjar myndir